Fyrirlestur: “Kvíði barna og unglinga – aðferðir sem reynst hafa vel”

Fyrirlestur: “Kvíði barna og unglinga – aðferðir sem reynst hafa vel”

Fræðslusvið og félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar munu bjóða íbúum sem og foreldrum og forráðamönnum barna í Dalvíkurbyggð á fyrirlestur um kvíða barna og unglinga fimmtudaginn 19. janúar 2017 - kl: 20:00-21:00 í Menningarhúsinu Bergi.

Hjalti Jónsson frá Sálfræðiþjónustu Norðurlands fer yfir birtingarmynd kvíða hjá börnum og unglingum og hvenær foreldrar þurfa að leita aðstoðar sérfræðings.

Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir frá Hugarfrelsi kynna einfaldar og gagnlegar aðferðir sem foreldrar geta nýtt með börnum sínum þegar kvíði og vanlíðan er ekki farin að stjórna lífi þeirra.

Hrafnhildur Sigurðardóttir grunnskólakennari og Unnur Arna Jónsdóttir viðskiptafræðingur hafa áralanga reynslu af kennslu, fyrirlestra- og námskeiðahaldi. Erindi þeirra byggir á bókum Hugarfrelsis.