Fyrirlestrar á vegum UMSE ætlaðar íþróttakrökkum

UMSE mun standa fyrir tveim fyrirlestrum á Dalvík 4.-5. janúar.
Fyrirlestrarnir fara fram í Dalvíkurskóla og eru ætlaðir íþróttakrökkum, 11 ára og eldri. Ekkert þátttökugjald er að fyrirlestrinum og eru foreldrar sérstaklega velkomnir. Fyrirlestrarnir eru haldnir í tengslum við frjálsíþróttaæfingabúði UMSE.

Markmiðasetning
Laugardaginn 4. janúar, kl. 18:00.
Ellert Örn Erlingsson, íþróttasálfræðingur og forstöðumaður íþróttamála á Akureyri, mun fjalla um markmiðasetningu íþróttafólks:
• Hvað er markmiðssetning?
• Til hvers markmiðssetning?
• Árangursrík markmiðssetning.

Heilbrigður lífsstíll
Sunnudaginn 5. janúar, kl. 13:00.
Sonja Sif Jóhannsdóttir, íþróttafræðingur, fjallar um heilbrigðan lífsstíl:
• Mikilvægi þess að borða hollt og vel.
• Mikilvægi svefns.
• Mikilvægi hvíldar til að ná árangri í íþróttum og lifa heilbrigðu lífi.
• Mikilvægi vatnsneyslu.
• Muninn á orkudrykkjum og íþróttadrykkjum.
• Jákvæð hugsun.

Nánari upplýsingar á veitir skrifstofa UMSE.