Fyrir ofan garð og neðan

Fyrir ofan garð og neðan

Fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og á Árskógsströnd.

Náttúrusetrið á Húsabakka heldur fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og Árskógsströnd í Mennigarhúsinu Bergi laugardaginn 6. nóvember kl 13:00-16:00.


Í sumar fóru fram frumrannsóknir á nokkrum af þeim fjölmörgu fornu görðum sem er að finna í Svarfaðardal og Árskógsströnd. Garðar þessir eru án efa elstu mannvirki sem enn eru sýnileg á þessu svæði og segja mikla sögu um búskaparhætti frumbyggja héraðsins.


Á fræðsluþinginu verða m.a. kynntar niðurstöður öskulagagreininga á aldri garðanna, samanburður gerður á svarfælsku görðunum og sambærilegum görðum í Þingeyjarsýslu auk þess sem farið verður út í almenna búskaparsögu á svæðinu.


Flutt verða þrjú framsöguerindi:
Sveitarlangur og aðrir svarfdælskir garðar - Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur.
Þjóðveldisgarðar í Þingeyjarsýslum - Árni Einarsson líffræðingur
Um búskaparhætti Svarfdælinga fyrr á öldum (um 900-1400) - Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur


Á eftir framsöguerindum verða almennar umræður og frummælendur svara fyrirspurnum.
Fræðsluþingið er styrkt af Menningarráði Dalvíkurbyggðar .
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.