Fundur um hitaveituframkvæmdir í Svarfaðardal

Opinn fundur um framkvæmdir Hitaveitu Dalvíkur verður haldinn að Rimum 29. mars klukkan 20:30. Á fundinum mun Þorsteinn K. Björnsson kynna þær framkvæmdir sem fyrirhugaður eru í Svarfarðardal og spurningum svarað varðandi framkvæmdirnar. Allir þeir sem hafa áhuga á framkvæmdunum eru hvattir til að mæta á fundinn.  

Í lok vikunnar, fimmtudag og föstudag, verður götusópun á Dalvík. íbúar eru hvattir til að sýna tillitsemi í umferðinni á meðan þessu stendur og taka jafnframt þátt í að hreinsa götunar og færa þá bíla sem standa við vegkantinn rétt á meðan þrifum stendur.