Fundur um búfjárhald í Dalvíkurbyggð.

Stjórn hestamannafélagsins Hrings býður til fundar um búfjárhald í Dalvíkurbyggð.
Fundurinn er opinn öllum sem málaflokkinn varða á einn eða annan hátt.

Fundurinn verður haldinn að Rimum,
þriðjudaginn 15.júní kl 20:00 

Dagskrá fundarins:
1. Fulltrúi frá hestamannafélaginu Hring.
2. Sviðstjóri Umhverfissviðs Dalvíkurbyggðar.
3. Fulltrúi forðagæslunnar.
4. Héraðsdýralæknir.
5. Lögreglan.
6. Umræður.



Stjórn hestamannafélagsins Hrings.