Fuglaskoðun í Friðlandi Svarfdæla

Fuglaskoðun í Friðlandi Svarfdæla

Næstkomandi þriðjudagskvöld 15. júní kl 20:00 gengst Náttúrusetrið á Húsabakka fyrir fuglaskoðunarferð frá Olís á Dalvík út í Hrísahöfða með leiðsögn Arnórs Sigfússonar fuglafræðings í Vallholti.  Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sjónauka en Arnór verður auk þess búinn fuglasjónauka af bestu gerð.