Fuglamyndir Hauks

Fuglamyndir Hauks

Haukur Snorrason sem m.a. situr í stjórn Náttúruseturs á Húsabakka er áhugamaður um fugla og ágætur fuglaljósmyndari. Á næstunni birtum við myndir hans hér á síðunni og getum með því móti vonandi fylgst nokkuð með komu farfugla í Svarfaðadal og á Árskógsströnd. Fyrst er hér Stari (Sturnus Vulgaris) sem segja má að orðinn sé staðfugl hér.