Fuglaferðir aftur á dagskrá

Náttúrusetrið mun í vor í samstarfi við byggðasafnið Hvol gangast fyrir fuglaferðum í Friðland Svarfdæla. Hefur dreifibréf verið sent í grunn- og leikskóla á Norðurlandi eystra þar sem boðið er upp á vandaða dagskrá, fræðslu og fuglaskoðun. Ferðir þessar mæltust vel fyrir í fyrra og nú hafa aðstæður batnað til muna með tilkomu fuglaskoðunarhússins við Tjarnartjörn.