Friðrik Ómar með tónleika

Friðrik Ómar með tónleika

Söngvarinn Friðrik Ómar heimsækir Dalvíkurbyggð í tónleikaferð sinni um landið í næstu viku eða föstudaginn 3. Október. Friðrik þarf vart að kynna fyrir Dalvíkingum en þessi 26 ára gamli söngvari hefur skipað sér í röð fremstu söngvara landsins á örskömmum tíma.

Þetta er í fyrsta sinn sem Friðrik fer eins síns liðs um landið en hann hefur áður sungið með Guðrúnu Gunnarsdóttur og fylgt eftir
þrem gullplötum þeirra sl. ár með því að syngja í kirkjum landsins. Að þessu sinni er það Grétar Örvarsson sem leikur undir á píanó og á efnisskránnieru meðal annars lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði vinsæl og fleiri þekkt dægurlög sem Friðrik hefur gaman af að flytja. 
 
"Það er alltaf gaman að koma til Dalvíkur og syngja. Kirkjan er með þeim fallegri á landinu og einstaklega góð fyrir svona tónlistarflutning eins og ég býð upp á þetta skiptið. Ég hef ekki haldið tónleika í kirkjunni síðan í desember 2006 svo það er alveg kominn tími á að koma aftur. Þessir tónleikar verða mjög frábrugðnir síðustu tónleikunum mínum hér í kirkjunni. Þessir eru mun lágstemmdari og hugljúfari" segir Friðrik Ómar. 

"Ég get lofað þægilegri stund fyrir alla aldurshópa og góð lög sem allir þekkja munu hljóma í hugljúfum útsetningum og kannski eitthvað 
eurovision líka, hver veit?" segir Friðrik og hlær.
 
Föstudagskvöldið 3. Október – Dalvíkurkirkja
    
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og eru miðar aðeins seldir við innganginn. Miðaverð er 1500.-