Fríar æfingar í sumar

Á síðasta fundi sínum ákvað stjórn UMFS að fella niður æfingagjöld barna og unglinga sem stunda knattspyrnu og frjálsar íþróttir hjá félaginu í júní, júlí og ágúst. Félagið fékk eina milljón króna í styrk frá Samherja með ósk um að féð rynni til barna- og unglingastarfs félagsins. Því hefur verið ákveðið að hafa fríar æfingar í sumar.