Fréttir af Fiskideginum mikla 2010

Fréttir af Fiskideginum mikla 2010

Um 150.000 matarskammtar á súpukvöldi og Fiskidegi.
Flugeldasýning sem verður seint toppuð
20.000 manns á ógleymanlegri afmælisdagskrá
Heiðranir.
Allir fengu risamálverk að gjöf.
Einmuna veðurblíða 
Fiskidagurinn mikli styrkir Hjálparstarf kirkjunnar.

Talið er að um eða yfir 35.000 manns hafi sótt Dalvíkurbyggð heim um helgina í einmuna blíðu allan tímann en þar var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur. Umferð gekk mjög vel miðað við fjölda og er gestum þakkað sérstaklega fyrir þolinmæði og rólegan akstur. Bærinn var ríkulega skreyttur og töldu margir að ganga um bæinn væri eins og að vera á að risastórri skraut og listasýningu.


Vináttukeðjan.
Föstudaginn 7. ágúst var dagskrá í kirkjubrekkunni sem er nokkurskonar setningarathöfn fyrir Fiskidaginn mikla og allt sem að honum snýr. Vináttukeðjan er hlý og notaleg stund þar sem að staldrað er við og hugað að vináttunni og náungakærleikanum. Aron Óskarsson og Gyða Jóhannesdóttir ásamt hljómsveitinni Ofnæmum frumfluttu og gáfu Fiskideginum mikla lag “Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla” , Stefán Þór Friðriksson, Dana Ýr Antonsdóttir, Matthías Matthíasson, Gyða Jóhannesdóttir, Karlakór Dalvíkur og leikskólabörn sungu, séra Pálmi Matthíasson flutti vinátturæðuna 2010, 5000 friðardúfublöðrum var sleppt, 10 skoteldum skotið upp, knúskorti með bókavinningum frá Sölku bókaforlagi dreift og að lokum knúsuðust allir viðstaddir.

Fiskisúpukvöldið mikla.
Á föstudagskvöldinu buðu um 120 fjölskyldur í Dalvíkurbyggð uppá fiskisúpu og vinalegheit. Hver sá sem bauð uppá súpu var með sína uppskrift. Um 24.000 manns voru á röltinu þetta kvöld og nutu gestrisni heimamanna. Kvöldið tókst einstaklega vel og gesti vantaði lýsingarorð til að segja frá þessum einstaka viðburði. Ánægðastir af öllum ánægðum voru líklega þeir íbúar sem buðu uppá súpu.

Fiskidagurinn mikli.
Laugardaginn 8. ágúst milli kl 10.30 – 17.00 var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur í tíunda sinn sinn á hafnarsvæðinu á Dalvík. Dagskráin hófst með magnaðr matarstöðvunum gekk mjög vel og nóg var til. Fiskidagurinn mikli hefur nú þegar sent hjálparstarfi kirkjunnar 4 – 5 bretti af mat sem var eftir. Fjölbreytt dagskrá gekk afar vel fyrir sig og fjölskyldan gat fundið margt til að gera saman. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar hélt ræðu dagsins, það var hin 15 ára Dalvíkurmær Gyða Jóhannesdóttir og á annað hundrað skemmtikrafta komu fram. Hátíðinni lauk síðan með vandaðri afmælisdagskrá um kvöldið í boði Samherja, þar sem allir sem stigu á stokk fóru á kostum, Matti Matt, Pétur Örn og Beggi Kára stjórnuðu bryggjusöng, Eyþór Ingi Gunnlaugsson tryllti lýðinn ásamt Deep Purple tribute bandi sínu og að lokum mætti Karlakór Dalvíkur á svið með stjórnanda sínum Guðmundi Óla Gunnarssyni ásamt rokkhljómsveit Matta Matt með sjóðheitt Bítla og Queen prógramm sem lengi verður í minnum haft. Í kjölfarið sáu um 20.000 manns eina mögnuðustu flugeldasýningu sem send hefur verið í loftið á Íslandi sýning sem sett var upp af björgunarsveitinni á Dalvík og og var í boði tveggja brottfluttra Dalvíkinga, Jóns Ægis Jóhannssonar sem býr og starfar í Kanada og Friðriks Más Þorsteinssonar sem býr og starfar í Bretlandi.

Almenn ánægja og frábær aðsókn var í aðra dagskrárliði tengda og ótengda Fiskideginum mikla, má þar nefna Fiskidagshlaup um Svarfaðardalinn, tónleikana Bergmál, Fiskidagsfjallgöngu á Karlsársetann, leiki og leikrit fyrir börnin, tónleika, sýningar og fleira.

Fiskidagurinn mikli 2010 tókst í alla staði mjög vel og er það mál jafnt gesta sem skipuleggjenda að hátíðin í ár hafi verið sú besta frá upphafi, og má þar m.a nefna dagskrána á aðalsviðinu, skipulag, matseðil, veður, afmælisdagskránna og ógleymanlega flugeldasýningu.

Á hverju ári heiðrar Fiskidagurinn mikli einstaklinga, fyrirtæki eða tímabil. Í ár voru tveir nafnar kallaðir uppá svið, Þorsteinn Már Aðalsteinsson fiskverkandi og formaður stjórnar Fiskidagsins mikla og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, Kristján Vilhelmsson frá Samherja var einnig kallaður upp.

Fiskidagurinn mikli heiðrar árið 2010:

Samherja hf
Samherji hf er heiðraður fyrir margháttaða sjávarútvegs-starfsemi á Dalvík. Á árinu 2010 eru 10 ár frá því Samherji hf kom að rekstri frystihússins á Dalvík. Frystihúsið hefur um áratugaskeið verið stærsta fiskvinnslufyrirtækið á Dalvík og verið í farabroddi fiskvinnslufyrirtækja á landinu. Á þeim áratug sem Samherji hf hefur rekið frystihúsið hefur hráefnið sem unnið er í húsinu tvöfaldast. Starfsmönnum hefur fjölgað á þessu tímabili en jafnframt hefur mikil framleiðniaukning og hagræðing átt sér stað. Í dag rekur Samherji hér á Dalvík fullkomnustu fiskvinnslu á landinu, og þótt víðar væri leitað. Sérstaklega er Samherji hf heiðraður fyrir öflugan stuðning við Fiskidaginn mikla. Árið sem Samherji hf hóf rekstur frystihússins á Dalvík var ákveðið að halda Fiskidaginn mikla í fyrsta sinn. Frá upphafi hefur Samherji hf verið aðalstyrktaraðili hátíðarinnar og alla tíð lagt til uppistöðu hráefnisins sem matbúið hefur verið fyrir gesti. Úrvals hráefni sem hefur gert það kleift að bjóða til veislu eins og á bestu veitingahúsum.

Fiskidagurinn mikli heiðrar árið 2010:

Þorstein Má Aðalsteinsson fiskverkanda

Þorsteinn Már Aðalsteinsson hafði á árinu 2001 frumkvæði að Fiskideginum mikla. Fiskverkendur á Dalvík ákváðu undir hans forustu að bjóða öllum landsmönnum til veislu og skemmtunar laugardaginn eftir verslunarmannahelgi. Hugmynd Þorsteins byggði á því að allt, matur og skemmtun á hátíðarsvæðinu, væri frítt. Þorsteinn hefur frá upphafi verið formaður stjórnar Fiskidagsins mikla og átt stóran þátt í því að gera Fiskidaginn mikla að þeirri fjölmennu hátíð sem raun ber vitni. Á fyrstu hátíðinni, árið 2001 voru gestir 5.8