Frétt sem gleymdist - Vetrarleikar 2012

Frétt sem gleymdist - Vetrarleikar 2012

Síðasta vetrardag, þann 18. apríl sl. hélt Leikbær vetrarleika í skógreitnum. Oft í vetur hafði staðið til að halda leikana en veðurskilyrði voru okkur eitthvað óhagstæð og snjór í kirkjubrekkunni því í minna lagi fyrir öflugar þotuferðir. Síðasta dag vetrar var ákveðið að halda í skógreitinn og  standa þar fyrir óformlegum vetrarleikum þrátt fyrir lítinn snjó og að þotur væru geymdar í leikskólanum. Við áttum ljúfan dag í frábæru veðri, allir skemmtu sér konunglega, og verðlaunapeningar voru veittir í lok dags.Ein leikskóladama átti afmæli þennan dag, en það var Ísold Ásdís sem varð 6 ára :-)

Hér má sjá fleiri myndir frá leikunum