Frestun funda bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar

Á síðasta fundi bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 27. júní 2006 samþykkti bæjarstjórn tillögu forseta bæjarstjórnar um frestun funda í júlí og ágúst. Bæjarstjórn mun því koma saman næst í byrjun september. Bæjarráð fékk jafnframt heimild bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem nauðsynlega krefjast afgreiðslu.