Framvísun rafrænna skilríkja við kosningar.

Framvísun rafrænna skilríkja við kosningar.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis skal kjósandi, sem greiða vill atkvæði, gera kjörstjóra grein fyrir sér, svo sem með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Þannig er það lagt í mat kjörstjóra að meta hvort kjósandi hafi gert nægilega góða grein fyrir því hver hann sé. Almennt gera menn grein fyrir sér með framvísun skírteina með mynd s.s. ökuskírteinis eða nafnskírteinis og vegabréfa en það má einnig gera á annan hátt s.s. ef kjörstjóri ber kennsl á kjósanda.

Til að tryggja öryggi stafrænna ökuskírteina er meðal annars í þeim einkvæmur tölvulesanlegur kóði sem aðeins er gildur í 60 sekúndur í einu. (Var áður 30 sek.) Hægt er að skanna þennan kóða og sannreyna þannig réttmæti upplýsinganna.
Þróað hefur verið snjallforrit í farsíma með einföldum skanna sem sannreynir stafræn ökuskírteini. Starfsfólk á kjörstöðum hefur nú þegar tekið þennan skanna í notkun.
Allir sýslumenn hafa þennan skanna til að sannreyna stafræn ökuskírteini. Með slíkum skanna er gengið úr skugga um að um ófalsað skírteini sé að ræða. Því er ekki ástæða til annars en að slík skírteini séu tekin til greina þegar kjósandi gerir kjörstjóra grein fyrir sér.


Hvernig framvísa ég stafrænu ökuskírteini?

 Upplýsingar fyrir notendur sem þurfa að sýna stafrænt ökuskírteini.

  1. Sæktu Ísland.is appið og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
    Ef þú ert þegar með appið getur þú opnað það eins og venjulega.

  2. Opnaðu Ísland.is appið og smelltu á Skírteini í valmynd neðst á skjánum.

  3. Smelltu á bleika flekann með skjaldamerkinu merktan ökuskírteini.

  4. Sýndu skjáinn sem birtist. Þar ætti að vera mynd af þér, strikamerki og aðrar upplýsingar um þín ökuréttindi.

  5. Ef gerð er krafa um að skírteinið sé staðfest með skönnun, skannar sá sem tekur á móti strikamerkið á skjánum með öðrum síma.