Framtíðar skipulag Dalvíkur - skólaverkefni úr Konunglega landbúnaðarháskólanum

Framtíðar skipulag Dalvíkur - skólaverkefni úr Konunglega landbúnaðarháskólanum

Síðastliðinn mánudag opnaði sýning í Bergi menningarhúsi sem byggir á hugmyndum um framtíðar skipulag Dalvíkur  –skólaverkefni Árna Steinars Jóhannssonar og félaga úr Konunglega landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1976.

Samhliða opnuninni var minning Árna Steinars, umhverfisstjóra og fyrrum Alþingismanns, heiðruð með vígslu og opnun minningarreitar um hann í Láginni á Dalvík en það voru SAMGUS, samtök garðyrku- og umhverfisstjóra sveitarfélaga, sem stóðu að vígslunni. 

Verkefnið er sem fyrr segir skólaverkefni nokkurra nema frá Skandinavíu en hugmyndirnar endurspegla að miklu leiti raunveruleika aðstæðna frá þeirra heimaslóðum hvað varðar veðurfar og notkun á gróðri. Að nokkru leiti eru tillögurnar byggðar á umræðum sem átt höfðu sér stað í sveitarfélaginu um framtíðar uppbyggingu og þróun byggðar Dalvíkur, fyrst og fremst út frá því hvernig uppbygging hafnarsvæðis yrði. Ljóst má vera að vinna hópsins hefur orðið kveikjan að umræðu um notkun trjágróðurs og aðgengi gangandi og hjólandi fólks um bæinn og að náttúrulegum svæðum í jaðri hans. 

Áhugaverð og skemmtileg sýning í Bergi.