Framkvæmdir vegna hitaveitu ganga vel

Eins og margir hverjir hafa tekið eftir eru hitaveituframkvæmdir komnar vel á veg á Árskógsströnd og í Svarfaðardal. Þegar upplýsingafulltrúi og bæjartæknifræðingur áttu leið hjá í dag var verið að plægja niður hitaveituröri og um leið ljósleiðara sem brátt verður tekinn í notkun. Framkvæmdir ganga vel og áætlað er að framkvæmdum ljúki í október. Myndir frá ferðinni má finna undir myndasafni.