Framkvæmdir á Gæsluvelli

Framkvæmdir á Gæsluvelli

Á mánudaginn hófust framkvæmdir við endurbætur á leiksvæði Gæsluvallarins við Svarfaðarbraut og leiksvæði Fagrahvamms/Kátakots. Núna er verið að vinna að jarðvegsskiptum á svæðinu og því talsverð umferð vörubíla og moksturstækja um Svarfaðarbrautina. Þegar jarðvegsskiptum er lokið þá verður hluti vallarins malbikaður og fallvarnarmottur lagðar undir klifurgrindina. Einnig á að smíða nýjan sandkassa og setja upp ný leiktæki. Verktaki við endurbæturnar er Dalverk ehf. Áætluð verklok eru 10. ágúst, eða áður en að leikskólastarf hefst að nýju.