Framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð

Mánudagskvöldið 15. september verður kynningarfundur vegna fyrirhugaðs framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Jón Eggert Bragason, verkefnisstjóri, mun kynna þær hugmyndir sem unnið er með vegna skólans.
Fundurinn verður í Dalvíkurskóla og hefst kl. 20
Allir þeir sem áhuga hafa á skóla- og atvinnumálum eru hvattir til að mæta.