Frábært framtak hjá Kalda

Mynd tekin við afhendingu styrksins í gær. Mynd: Guðrún Inga Hannesdóttir
Mynd tekin við afhendingu styrksins í gær. Mynd: Guðrún Inga Hannesdóttir

Undanfarin tvö ár hefur starfsfólk Bruggsmiðjunnar Kalda á Árskógssandi staðið að styrktarverkefninu Vertu kaldur sem hugsað er til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. 

Í gær færði starfsfólk Kalda, Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis myndarlegan styrk að verðmæti 2.500.000 kr. en þessi upphæð safnaðist með ágóða af verkefninu sem samanstendur af sölu á Vertu kaldur léttbjórnum frá Bruggsmiðjunni auk fallegra armbanda sem starfsfólkið hannaði og lét framleiða fyrir sig. Þess má geta að árið 2018 skilaði verkefnið styrk að verðmæti 1.800.000 kr.  

Í tilkynningu á facebook-síður Bruggsmiðjunnar kom starfsfólk Bruggsmiðjunnar á framfæri þakklæti til allra þeirra sem veittu þeim lið og hjálpuðu þeim að styrkja það frábæra starf sem félagið heldur uppi.


Mynd sem tekin var við afhendingu styrksins árið 2018. Mynd: fengin af facebook-síðu Bruggsmiðjunnar


Armbandið sem hannað er af starfsfólki Kalda

 

Svona verkefni eiga hrós skilið enda mikil og þrotlaus vinna sem býr að baki sem oft er ekki sjáanleg á yfirborðinu - Til hamingju með þetta frábæra framtak!

Íris Hauksdóttir,
þjónustu- og upplýsingafulltrúi