Frábær árangur í Stærðfræðikeppni grunnskólanna

Um miðjan mars tóku Valdimar Daðason í 8. bekk, Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson og Úlfar Valsson í 9. bekk þátt í Stærðfræðikeppni grunnskólanna. Úrslitin voru kynnt í Menntaskólanum á Akureyri á miðvikudag og þá kom í ljós að Valdimar og Jóhann sigruðu í sínum aldursflokkum og hljóta peningaverðlaun fyrir. Til hamingju strákar