Frábær árangur á Meistaramóti Ski


11 og 12 ára krakkar úr Skíðafélagi Dalvíkur stóðu sig frábærlega á Meistaramótinu sem fór fram á Dalvík helgina 6-7 mars.
Í svigi 11ára vann Karl Vernharð Þorleifsson. Í svigi 12 ára Viktoría Katrín Oliversdóttir.
Sigurvegari í stórsvigi 11 ára varð Andrea Björk Birkisdóttir og í 12 ára flokki unnu Eydís Arna Hilmarsdóttir og Ingvi Guðmundsson.
Þá unnu Viktoría Katrín Oliversdóttir og Andrea Björk Birkisdóttir alpatvíkeppnina. Myndir frá Jónsmóti og meistaramóti má sjá á www.flickr.com/bjarnigunn.