Frábær árangur á Andrésarleikunum

Andrésar Andarleikum var slitið á föstudaginn en þetta árið voru þeir í seinna lagi þar sem sumardaginn fyrsta bar upp á skýrdag. Þátttakendur frá Skíðafélagi Dalvíkur voru 69 og hlutu þeir samtals 43 verðlaun og voru 27 þeirra í fyrstu þremur sætunum. 9 gullverðlaun unnust, 10 silfur, 8 brons og síðan urðu 16 í sætum 4-6. Verðlaun eru veitt fyrir 6 fyrstu sætin nema í yngsta árgangnum en þar eru þau 8. Glæsilegur árangur sem Skíðafélag Dalvíkur er afar stolt af. Góður andi var í hópnum alla dagana sem skiptir miklu máli. Foreldrafélagið sá um skipulagningu og þakkar félagið því fyrir aðstoðina og öllum öðrum sem að mótinu komu.

Frétt fengin af www.skidalvik.is