Frá sveitastjórn Dalvíkurbyggðar

Frá sveitastjórn Dalvíkurbyggðar

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar vill koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra fjölmörgu sem standa nú í ströngu við að létta neyð af samfélaginu. Björgunarsveit, Landhelgisgæsla, starfsmenn Landsnets, Rarik, verktaka og veitna ásamt svo fjölmörgum öðrum sem leggja nú dag við nótt í hjálparstarfi. Miklar þakkir eru færðar til þeirra sem hafa komið um langan veg til aðstoðar í Dalvíkurbyggð. Þá þakkar sveitarstjórn íbúum fyrir æðruleysi og nágrönnum og ráðamönnum landsins fyrir samhug á erfiðum tímum. Forgangsröðin þar til Dalvíkurlína kemst í gagnið er að tryggja íbúum í dölunum á köldu svæði bráðabirgðaorku.

Slíkar hamfarir eru sem betur fer fátíðar og því hefur ýmislegt betur mátt fara í sambandi við upplýsingaflæði og viðbrögð. Mikilvægt er að draga lærdóm af þessum hamförum og mun verða sest yfir verkferla þegar eðlilegt ástand kemst á á ný.

Sveitarstjórn hvetur íbúa til að deila upplýsingum til ættingja sinna í byggðarlaginu. Þá hugi íbúar að eldra fólki og einstæðingum í sínu nánasta umhverfi. Sveitarstjórn ítrekar að þeir sem hafa aðgang að rafmagni spari það eins og kostur er.