Frá öðru sjónarhorni - Ljósmyndasýning í Bergi

Frá öðru sjónarhorni - Ljósmyndasýning í Bergi

Ljósmyndasýningin "Frá öðru sjónarhorni" var opnuð í salnum í menningarhúsinu Bergi við sama tækifæri og hátíðarmóttaka EFSA átti sér stað, sunnudaginn 9. maí.

Claus Sterneck og Tina Bauer sýna Íslandsmyndir sínar, en þau eru bæði frá þýskalandi og búsett hér á landi. Þetta er falleg sýning sem vert er að skoða - kíkið við í Bergi - það er þess virði.

Sýningin stendur til 2. júlí 2010 og er opin á sama tíma og Kaffihúsið í Bergi.