Fótlaug Bakkabræðra og tásustígurinn - tvær perlur

Fótlaug Bakkabræðra og tásustígurinn - tvær perlur

Í síðustu viku voru hjá okkur hörkuduglegir sjálfboðaliðar á vegum alþjóðasamtakanna SEEDS. Þeir endurbættu bæði TÁSUSTÍGINN og FÓTLAUG BAKKABRÆÐRA ásamt ýmsum öðrum verkum. Með góðri samvisku má segja að bæði Tásustígurinn og fótlaugin séu tvær perlur til  andlegrar og líkamlegrar heilsubótar sem vert er að vekja athygli á fyrir heimamenn og gesti í byggðarlaginu.

Perlurnar tvær er að finna í kringum Húsabakka í Svarfaðardal

 
 
Útsýnið frá fótlauginni er hreint út sagt unaðslegt