Forvarnardagurinn 2008

Forvarnardagurinn verður haldinn í þriðja sinn næstkomandi, fimmtudag, 6. nóvember, um land allt. Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Bandalag íslenskra skáta, Ungmennafélag Íslands,auk Reykjavíkurborga, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Actavis er aðalstyrktaraðili dagsins.

Að venju er dagskráin miðuð við nemendur í 9. bekkjum grunnskóla landsins sem tekið hafa öflugan og virkan þátt í verkefnum dagsins. Á heimasíðu verkefnisins http://www.forvarnardagur.is/  má m.a. finna skýrslu með samanteknum niðurstöðum Forvarnardagsins 2007, ávarp forseta Íslands auk kynningarmyndbands dagsins, upplýsingum um ratleik og fleira áhugavert. 

Sveitarstjórnarmenn, forvarnarfulltrúar sveitarfélaga og forsvarsmenn íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi eru hvattir til þess að kynna sér það sem fram fer í skólum í þeirra heimabyggð með mögulega hagnýtingu inn í stefnumótun í þessum málaflokkum í huga.

Frétt tekin af heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga www.samband.is