Forsetakosningar 27. júní 2020 - utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Forsetakosningar 27. júní 2020 - utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga þann 27. júní 2020 fer fram í Ráðhúsinu á opnunartíma þjónustuvers Dalvíkurbyggðar á milli kl. 10.00-13.00 frá og með 5. júní.

Kjörstaðir verða lokaðir þann 17. júní.

Minnt er á að kjósendur hafi persónuskilríki meðferðis.

Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl.16 fjórum dögum fyrir kjördag.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum mun fara fram í samráði við forstöðumenn þeirra og verður auglýst frekar innan viðkomandi stofnana.

Kosningavefur Stjórnarráðsins, www.kosning.is , hefur að geyma margvíslegar upplýsingar varðandi forsetakosningarnar.