Foreldravika og tónfundir

Kæru foreldrar, forráðamenn og nemendur
Dagana 13 – 17 október verður foreldravika í tónlistarskólanum, kennslan verður óbreytt en foreldrar og forráðamenn eru boðaðir í tíma með sínum börnum. Er þetta gert til að stuðla að betri samskiptum og samvinnu við heimili nemenda og veita foreldrum  og forráðamönnum meiri innsýn í tónlistarnám barna sinna. Það hefur sýnt sig að árangur verður meiri þar sem nemendur fá stuðning heima fyrir. Foreldrum er einnig boðið að koma á kóraæfingar og hópakennslu í samspili og tónfræðigreinum.
Tónfundir skólans verða dagana þriðjudaginn 14. október kl. 17.00. og fimmtudaginn 16. október kl. 16.30 og síðan þriðjudaginn 21. október kl. 17.00.  Allir þessir tónfundir fara fram í sal skólans og kennarar láta sína nemendur vita ákvaða tónleikum þeir eigi að spila á.