Foreldrar barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2013

Kæru foreldrar

Í Dalvíkurbyggð starfa tveir grunnskólar Árskógarskóli (1. – 7. bekkur) og Dalvíkurskóli (1. – 10. bekkur). Frá og með skólabyrjun haustið 2013 verður skólaakstur í boði frá Dalvík og í Árskóg fyrir þá sem kjósa að senda barnið sitt í Árskógarskóla.

Þar sem valið er ykkar biðjum við ykkur góðfúslega að setja ykkur í samband við skólann sem barnið á að sækja og innrita barnið fyrir 1. apríl 2013.

Vinsamlegast hafið samband við skólastjóra Árskógarskóla í síma 460-4971 eða sendið tölvupóst á gunnthore@dalvikurbyggd.is  eða í Dalvíkurskóla í síma 460-4980 eða á netfangið ritari@dalvikurbyggd.is  

Virðingarfyllst,


Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Gísli Bjarnason
skólastjóri Árskógarskóla skólastjóri Dalvíkurskóla

http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/ 

http://dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli/