Flutningur á höfuðstöðvum Fiskistofu

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna flutnings á höfuðstöðvum Fiskistofu:

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu til Akureyrar. Byggðaráðið telur að slíkur flutningur sé mikilvæg sóknaraðgerð fyrir Akureyri og Eyjafjörð.
Byggðaráð bendir jafnframt á að hluti þeirra starfa sem verða hér fyrir norðan gætu sem best verið í Dalvíkurbyggð, sem er stór útgerðarstaður með sterka innviði. Byggðaráð óskar því eftir því að það verði skoðað um leið og flutningur starfanna verður undirbúinn.