Fjórða miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla

Fjórða miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla, þann 18. júní, verður farin yfir Hamarinn. Gengið verður frá Sökku og endað við bæinn Hamar. Sökkubændur munu sjá um leiðsögnina.

Mæting er á bílastæðið norðan við kirkjuna þar sem safnast verður saman í einkabíla.

Lagt verður af stað klukkan 17:15.

Ekkert gjald er í ferðina sem tekur um það bil 2 klukkustundir og hentar allri fjölskyldunni.

ALLIR VELKOMNIR.