Fjölskyldan saman á Fiskideginum mikla, dagana 10. til 13. ágúst 2017 á Dalvík

Fjölskyldan saman á Fiskideginum mikla, dagana 10. til 13. ágúst 2017 á Dalvík

◦    Fjölbreyttur matseðill 25 réttir á matseðlinum, fiskborgarar á stærsta færibandagrilli landsins, fish and chips, filsur- fiskipylsur og laxasashimi í boði Arnarlax sem er nýr aðalstyrktaraðili.  NÝ fiskasýning, togara gefið nafn, risaknús, myndataka í búrhvalskjafti, fiskisúpukvöldið og stórkostleg tónlistarveisla þar sem að landslið íslenskra tónlistarmanna mun fara á kostum í íslenskri tónlistarveislu.

◦    Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í 17. sinn. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis.

 Vináttukeðjan 2017 – Setning fjölskylduhátíðarinnar “Fiskidagurinn mikli”

Vináttukeðjan er um klst. löng dagskrá.
Framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla Júlíus Júlíusson setur hátíðina. Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri Akureyrarbæjar og stofnandi ástarvikunnar í Bolungarvík flytur vináttukeðjuræðuna 2017. Leikskólabörnin syngja, Guðmundur Kristjánsson og Selma dóttir hans taka lagið og Örn og Valdimar heilla gesti Vináttukeðjunnar. Friðrik Ómar, Gyða Jóhannesdóttir og karlaraddir ljúka dagskránni að venju með “Mömmu” laginu. Börnin fá vináttufána og knúskorti og vináttuböndum verður dreift, flugeldum skotið upp. Að venju verður risaknús til þess að leggja vináttu og náungakærleikslínur fyrir helgina. 

Fiskisúpukvöldið haldið í þrettánda sinn
Fiskisúpukvöldið er nú haldið í þréttánda sinn, þetta er viðburður sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Heimamenn bjóða gestum og gangandi uppá mismunandi fiskisúpur í heimahúsum, görðum eða á götum úti. Súpukvöldið hefst að vanda kl. 20:15. 

Fiskidagurinn mikli sjálfur
Á sjálfum Fiskideginum mikla, laugardeginum 12. ágúst milli kl. 11:00 og 17:00 verður að vanda margt í boði. Stundvíslega kl. 11:00 opna allar matarstöðvar og dagskráin hefst. Björgúlfur EA 312 nýr skuttogari Samherja verður til sýnis við hafnargarðinn á hátíðarsvæðinu. 

Fjölbreyttur matseðill
Matseðill Fiskidagsins er afar fjölbreyttur að vanda. Þar má að sjáfsögðu finna gamla og góða rétti þar má nefna ljúffenga síld og rúgbrauð, fersku rækjurnar og fiskborgarana. Salka Fiskmiðlun býður upp á harðfisk og smjör. Tandoori bleikja með naan brauði frá Indian Curry Hut á Akureyri. Akureyri FISH og Reykjavík FISH koma með Fish and chips. Rækjusalat  í boði Dögunar. Filsur sem eru fiskipylsur. Nýjar sósur og kryddblöndur á  fisknum á grillunum, bleikjunni, þorsknum og saltfisknum. NINGS fjölskyldan mætir með risasúpupottinn þar sem að boðið verður uppá austurlenska rækju og bleikjusúpu. Grímur kokkur kemur frá Eyjum með uppáhald allra plokkfiskinn góða og fiskistangir. Aðstoðarkokkur Fiskidagsins mikla Addi Yellow eða Arnþór Sigurðsson stýrir sasimistöðinni þar sem að lax og hrefna verða í boði. Nú verður í fyrsta skipti lax í boði og kemur hann frá Arnarlaxi sem er nýr og öflugur aðili í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla. Kaffibrennslan býður uppá besta kaffið, svartan Rúbín, Íspinnarnir frá Samhentum Umbúðamiðlun klikka aldrei og Samherji býður uppá sælgæti.

Barnadagskrá
Að venju er vel hugsað um börnin já eða fjölskylduna alla á fjölskylduhátíðinni Fiskideginum mikla. Meðal dagskrárliða sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir börn eru: Brúðubíllinn í boði KEA. Íþróttaálfurinn, Halla hrekkjusvín, Siggi sæti og Solla stirða og andlitsmálun í boði Samherja. Leikhópurinn Lotta með Ljóta andarungann, teikniveröld, uppblásinn fótboltavöllur í boði Vífilfells, veiði á bryggjunni og fleira. 

Samherji og Fiskidagurinn bjóða börnum að skapa nýja fiskiveröld.
Náttúran hefur skapað marga fiskana og í hafinu leynast þúsundir tegunda. Samherji veiðir t.d. um 50 þeirra. Á Fiskidaginn mikla milli kl 11.00 og 17.00 í salthúsinu verður börnum boðið að skapa og nota hugmyndaflugið til að búa til enn fleiri fiska. Börn á öllum aldri eru hvött til að teikna fisk, gefa honum nafn og hengja hann upp og allir sem skila mynd fá glaðning.  

Ný fiskasýning og nú innandyra í Allahúsinu
Allt frá árinu 2002 hefur verið sett upp áhugaverð fiskasýning á Fiskideginum mikla, sýning þar sem að sýndir hafa verið á þriðja hundrað tegundir af ferskum fiskum sem glatt hafa þúsundir manns.  Sýningin hefur ávallt verið utandyra. Í ár verður sýningin færð inn í hús og sett upp á nýjan máta með textum, lýsingum og á skjám. Það er að venju Skarphéðinn Ásbjörnsson sem heldur utan um sýninguna og hefur hann lagt mikla vinnu í þetta áhugaverða verkefni. Sýningin í ár er eitthvað sem að enginn ætti að missa af. Að venju verður hákarlinn af sýningunni skorinn kl. 15.00 og nú á nýjum stað, það er Gunnar Reimarsson sem sýnir listir sínar við hákarlaskurðinn. 

Myndataka í búrhvalskjalfti
Í ár verður til sýnis efri skoltur úr Búrhval og verður hann settur þannig upp að gestir geta sest í hann eða stillt sér upp við hann til myndatöku. Skolturinn kom í botntroll hjá Björgvin EA 311  togara Samherja sumarið 2014. Skipið var á veiðum í Reykjafjarðarál á um 300 m dýpi. 66°52N-20°32V. Skipið var á þorskveiðum  þegar beinið kom í trollið. 

Ný og öflugur aðili í hóp aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla
Arnarlax bætist nú í öflugan hóp eftirtaldra aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla. Samherji hf. Samskip, Sæplast, Vífilfell, Marel, Dalvíkurbyggð, Landsbankinn,Valeska-Fiskmarkaður Norðurlands, KEA, Kristjánsbakarí, Ásbjörn Ólafsson, Salka Fiskmiðlun og vinir frá Nígeríu, og Marúlfur. Arnarlax verður með aðstöðu á hafnargarðinum og í sasimibásnum í ár verður boðið uppá lax frá þeim. 

Kvöldtónleikar og flugeldasýning í boði Samherja.
Enn á ný er lagt af stað með stórtónleika að kvöldi Fiskidagsins mikla. Tónleikarnir eru   samvinnuverkefni Samherja, RIGG viðburðafyrirtækis Friðriks Ómars, Fiskidagsins Mikla, Exton og fl. Á fimmta tug tæknimanna, söngvara og hljóðfæraleikara taka þátt í þessari stór sýningu sem er að öllum líkindum ein sú stærsta og viðamesta sem hefur verið sett upp á Íslandi. Meðal þeirra sem koma fram eru heimamennirnir Friðrik Ómar, Matti Matt og Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Björgvin Halldórsson, Jónas Sig, Ragga Gísla, Birgitta Haukdal, Andrea Gylfadóttir, Friðrik Dór, Pálmi Gunnars, Blaz Rocka, að ógleymdum Ragga Bjarna. Að venju er það stórhljómsveit Rigg viðburða eða með öðrum orðum landslið Íslands sem spilar undir. Dagskráin endar með risaflugeldasýningu sem björgunarsveitin á Dalvík sér um, sýningin er einnig í boði Samherja.

 

Foreldrar, þetta er bréf til ykkar!!

Eftirfarandi bréf er samvinnuverkefni forvarnarhóps Fiskidagsins mikla, Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar og Íþrótta- æskulýðsfulltrúa Dalvíkurbyggðar. 

Við foreldrar njótum þeirra forréttinda að bera ábyrgð á börnum okkar a.m.k. þar til þau eru 18 ára gömul.  Við höfum þennan tíma til að njóta samverustunda, fylgjast með þroska þeirra, leiðbeina þeim og miðla gildum.  Þessi tími kemur ekki aftur, hann verður ekki endurtekinn og ekki settur í bið.  Foreldrar geta haft afgerandi áhrif á hvað þeirra unglingur gerir með því að fylgja honum vel eftir, vera góð fyrirmynd og bjóða upp á samveru sem er gefandi fyrir unglinginn. Kannanir sýna að unglingar sem verja miklum tíma með fjölskyldunni eru líklegri til að forðast áhættuheguðun og standast neikvæðan hópþrýsting.

Sérstakar reglur skv. barnaverndarlögum, gilda um útivistartíma barna og ungmenna.  Rétt er að benda á að þetta eru lög, ekki ábendingar.  Í barnaverndarlögunum kemur fram að frá  1.maí til 1.september megi börn, 12 ára og yngri ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00 nema í fylgd með fullorðnum.  Börn á aldrinum 13 til 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 24:00, nema þau séu á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.    Ekki þarf annað en að skoða á hvaða tímum sólarhrings börn byrja að fikta með áfengi og aðra vímugjafa, hvenær alvarlegar líkamsárásir og óæskileg kynlífsreynsla eiga sér stað, til að skilja að útivistarreglurnar eru ekki settar fram af neinni tilviljun.

Með þessu bréfi viljum við kalla ykkur til samvinnu með að taka á þessum málum og fylgja eftir settum reglum um löglegan útivistartíma og að senda börn ykkar ekki ein á Fiskidaginn mikla.  Börn og unglingar eiga ekki að vera úti eftirlitslaus seint að kvöldi og alls ekki eftir miðnætti, sérstaklega við aðstæður sem geta skapast í fjölmenni eins og í kringum Fiskidaginn mikla.   Reynslan hefur sýnt okkur að dagskráin gengur vel yfir daginn en vandamálin snúa flest að næturlífinu og umgengni þá.  Íbúar Dalvíkurbyggðar sem allflestir koma að hátíðinni með einum eða öðrum hætti vilja vernda hátíðina sína, þannig að við getum áfram boðið öllum landsmönnum til okkar, á hátíð sem er og hefur verið með það að leiðarljósi að fjölskyldan skemmti sér saman og eigi góðar stundir á Dalvík.

Fiskidagurinn mikli, Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar, Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi hvetja foreldra til að axla ábyrgð á uppeldishlutverki sínu og gefa ekki ólögráða ungmennum leyfi til að sækja skemmtanir og viðburði án þess að ráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja öryggi þeirra eða að fjölskyldan fari saman og allir njóti vímulausrar helgi saman. 

Kveðja,

Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri, Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla

Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Lilja Björk Ólafsdóttir, forvarnarráðgjaf

 18 ára og yngri mega ekki tjalda nema í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum. Það eru ekki viðmið heldur lög.

 

Það er von aðstandenda Fiskidagsins mikla að allir skemmti sér vel, njóti matarins og þeirra atriða sem í boði eru. Sérstaklega vonumst við til þess að allir eigi góðar og ljúfar stundir með fjölskyldunni og vinum. Fiskidagurinn mikli er fjölskylduhátíð þar sem hvorki er pláss fyrir dóp né drykkjulæti og leggja aðstandendur mikla áherslu á að íbúar eða gestir hafi ekki áfengi um hönd á auglýstum dagskrárliðum Fiskidagsins mikla. Frá upphafi höfum við haft frábæra gesti sem hafa gengið einstaklega vel um og fyrir það viljum við þakka sérstaklega.

 

Matseðilinn, dagskrá, aðrar almennar upplýsingar og fréttir má skoða á heimasíðu dagsins www.fiskidagur.muna.is