Fjölskyldan á fjallið

Tilkynning frá UMSE
Nú er loksins komið að því að fara með gestabókina UMSE upp á Böggvisstaðafjall. Farið verður upp á föstudaginn 4. júlí. Lagt verður af stað frá Brekkuseli, skála Skíðafélags Dalvíkur, kl. 19:00. Áætlað er að ferðin upp og niður taki um 3 klst.
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta og ganga með okkur upp á fjallið.