Fjölmargar umsóknir fyrir vorönn í Menntaskólann á Tröllaskaga

Alls sóttu 21 um skólavist á vorönn en því miður var ekki hægt að taka alla nemendur inn þar sem flestir námshópar eru orðnir yfirfullir. Þessi mikli fjöldi kom ánægjulega á óvart en flestir koma úr Siglufirði, þá Ólafsfirði en nokkrir koma annars staðar frá. Það verða því 86 nemendur sem hefja nám á vorönn 2011.