Fjöldi gesta í Sundlaug Dalvíkur sá þriðji mesti frá upphafi

Fjöldi gesta í Sundlaug Dalvíkur sá þriðji mesti frá upphafi

Síðastliðið ár var mjög gott ár fyrir Sundlaug Dalvíkur en fjöldi gesta á árinu er sá þriðji mesti frá upphafi. Í apríl á síðasta ári var ákveðið að prófa tímabundið að bjóða börnum frítt í sund. Sú tilraun tókst vel og á haustmánuðum var því ákveðið að halda því áfram til frambúðar. Það hafði mjög jákvæð áhrif á heildarfjölda gesta yfir árið og voru þeir alls 47.306 og jukust um rúmlega 4000 á milli ára. Þá er ónefnd mikil ánægja gesta og heimamanna sem þessu fylgdi.

Hér fyrir neðan er mynd með aðsóknartölum fyrir árin 2005-2008