Fjöldi fólks komið til Dalvíkurbyggðar

Fjöldi fólks komið til Dalvíkurbyggðar

Undanfarna daga hefur fjöldi fólks lagt leið sína til Dalvíkurbyggðar en eins og lesendur síðunnar hafa tekið eftir er Fiskidagurinn mikli á morgun. Í kvöld er Fiskisúpukvöldið mikla og bíða heimamenn sem og ferðamenn þess með mikilli eftirvæntingu og víða eru komnar upp skemmtilegar skreytingar um bæinn, blöðrur, ljósaseríur og "sjómenn" hafa verið settir upp víða.

Enn er nóg rými á tjaldsvæðum á Dalvík en í ár eru þau fjögur. Aðaltjaldsvæðið á Dalvík er óðum að fyllast og bendum við fólki á svæðin fyrir ofan sundlaug (við Böggvisbraut) og norðan við Dalvíkurkirkju.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær og í morgun af skreytingum víðs vegar um Dalvík.

fiskiskreyting2006 2

fiskiskreyting2006 3

fiskiskreyting2006 4fiskiskreyting2006 6