Fjárhagsáætlunargerð 2023

Fjárhagsáætlunargerð 2023

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2023-2026. Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir ofangreindir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim skriflega í þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur eða senda í tölvupósti til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í síðasta lagi mánudaginn 20. júní 2022.

Vakin er athygli á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is, er að finna reglur Dalvíkurbyggðar er gilda almennt um styrkveitingar. Þar kemur fram meðal annars hvaða gögn og upplýsingar skulu fylgja með ef um er ræða erindi og/eða umsóknir um styrki, sjá nánar

https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur-dalvikurbyggdar.pdf

Í samræmi við Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að senda inn erindi og hafa þannig möguleg áhrif á forgangsröðun og áherslur í starfs- og fjárhagsáætlunarvinnunni. Lýðræðisstefnuna er hægt að nálgast á heimsíðu sveitarfélagsins

https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Stefnur/lydraedisstefna-fyrir-dalvikurbyggd.pdf

Erindi sem berast á tilsettum tíma fara fyrir fund byggðaráðs eftir 20. júní 2022 og byggðaráð vísar erindunum áfram til fagráða, eftir því sem við á, til umfjöllunar og óskar eftir tillögu fagráðanna um afgreiðslu.

F.h. Dalvíkurbyggðar,
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs
Netfang: gp@dalvikurbyggd.is