Fjárhagsáætlunargerð 2021

Fjárhagsáætlunargerð 2021

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2021-2024. Auglýst er  eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir ofangreindir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim  skriflega  í þjónustuver skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur eða senda í tölvupósti til sveitarstjóra, katrin@dalvikurbyggd.is, í síðasta lagi mánudaginn 7. september 2020.

Vakin er athygli á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, er að finna reglur Dalvíkurbyggðar er gilda almennt um styrkveitingar.  Þar kemur fram meðal annars hvaða gögn og upplýsingar skulu fylgja með ef um er ræða erindi og/eða umsóknir um styrki, sjá nánar hér.

Í samræmi við Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að senda inn erindi og hafa þannig möguleg áhrif á  forgangsröðun og áherslur í starfs- og fjárhagsáætlunarvinnunni. Lýðræðisstefnuna er hægt að nálgast á heimsíðu sveitarfélagsins.

Erindi sem berast á tilsettum tíma fara fyrir fund byggðaráðs eftir 10. september 2020 og byggðaráð vísar erindunum  áfram til fagráða,  eftir því sem við á, til umfjöllunar og óskar eftir tillögu fagráðanna um afgreiðslu.

F.h. Dalvíkurbyggðar,

Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Netfang:  katrin@dalvikurbyggd.is