Fjárhagsáætlunargerð 2019

Fjárhagsáætlunargerð 2019

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2019-2022 . Því er auglýst  eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir ofangreindir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim  skriflega  í þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur eða senda í tölvupósti til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs  í síðasta  lagi  mánudaginn   3. september 2018.

Vakin er athygli á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is, er að finna reglur Dalvíkurbyggðar er gilda almennt um styrkveitingar.  Þar kemur fram meðal annars  hvaða gögn og upplýsingar þurfa að fylgja með ef um er ræða erindi og/eða umsóknir um styrki, sjá nánar

https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur-dalvikurbyggdar.pdf

Í samræmi við Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að senda inn erindi og hafa þannig möguleg áhrif á  forgangsröðun og áherslur í starfs- og fjárhagsáætlunarvinnunni. Lýðræðisstefnuna er hægt að nálgast á heimsíðu sveitarfélagsins

https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Stefnur/lydraedisstefna-fyrir-dalvikurbyggd.pdf

Erindi sem berast á tilsettum tíma fara fyrir fund byggðaráðs eftir 3. september 2018 og byggðaráð vísar erindunum  áfram til fagráða,  eftir því sem við á, til umfjöllunar og óskar eftir tillögu fagráðanna um afgreiðslu.

 

F.h. Dalvíkurbyggðar,

Guðrún Pálína Jóhannsdóttir

sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs

Netfang:  gp@dalvikurbyggd.is