Fjárhagsáætlunargerð 2012

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2012. Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, ábendingum og tillögum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim skriflega í þjónustuver bæjarskrifstofu eða senda tölvupóst til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs fyrir 11. október 2011.

F.h. Dalvíkurbyggðar

Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri Fjármála- og stjórnsýslusviðs
gp@dalvikurbyggd.is