Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar samþykkt

Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar samþykkt

 

Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2023 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2024-2026 var samþykkt einróma þann 29.nóvember og kynnt á íbúafundi þann 6.desember.

Það er alltaf léttir að ljúka fjárhagsáætlunargerð ár hvert og því vil ég þakka öllum þeim sem komu að vinnunni með einum eða öðrum hætti, starfsfólki, stjórnendum, sviðsstjórum og að ógleymdum kjörnum fulltrúum. Það er til mikillar fyrirmyndar að vinnan hefur einkennst af metnaði fyrir verkefninu þar sem markmið allra er að reka öflugt sveitarfélag sem veitir íbúum sínum góða þjónustu. Það ber að þakka að fjárhagsáætlun var samþykkt samhljóða með sjö greiddum atkvæðum og var unnin í mikilli einingu kjörinna fulltrúa.

Fjárhagsáætlun hvers árs er leiðarvísir okkar sem berum ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins hún segir til um hvað við höfum til umráða í hverjum málaflokki. Það er mikilvægt að við ástundum ábyrg vinnubrögð höfum eftirlit með framkvæmd fjárhagsáætlunar og ekki síst bregðumst við ef eitthvað óvænt kemur upp í rekstri sveitarfélagsins.

Það hefur verið lærdómsríkt að fara í gegnum mitt fyrsta rennsli við vinnu við fjárhagsáætlun hjá Dalvíkurbyggð. Áætlunin er unnin af vandvirkni, allur ferill vinnunnar er skýr sem og hlutverk hvers og eins. Áætlunin endurspeglar ábyrgan rekstur, það er gert ráð fyrir afgangi út áætlunartímabilið þar sem skiptir miklu aukning í tekjum sem meðal annars er tilkomin vegna þeirra ánægjulegu tíðinda að okkur hefur fjölgað í Dalvíkurbyggð. Til þess að sú þróun haldi áfram skiptir forgangsröðun í þágu skipulagsmála og uppbyggingu innviða sem og góðrar þjónustu við íbúa lykilhlutverki. Hér að neðan má finna hlekk af framsögu minni við síðari umræðu sem og kynningu á íbúafundinum þann 6.desember.

Mig langar að þakka starfsfólki Dalvíkurbyggðar, sveitarstjórn og öllu því fólki sem starfar í nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins fyrir óeigingjart starf í þágu sveitarfélagsins.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.

Fjárhagsáætlun 2023-2026
Framsaga sveitarstjóra með fjárhagsáætlun 2023