Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2027-2029 samþykkt

Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2027-2029 samþykkt

Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2027-2029 var samþykkt einróma á fundi sveitarstjórnar þann 18.nóvember sl.

Það er alltaf léttir að ljúka fjárhagsáætlunargerð ár hvert, en því fylgir líka tregi þegar sveitarstjórn leggur fram sína síðustu fjárhagsáætlun á kjörtímabilinu. Ég vil þakka öllum þeim sem komu að vinnunni með einum eða öðrum hætti, starfsfólki, stjórnendum, sviðsstjórum og að ógleymdum kjörnum fulltrúum. Það er til mikillar fyrirmyndar að vinnan hefur einkennst af metnaði fyrir verkefninu þar sem markmið allra er að reka öflugt sveitarfélag sem veitir íbúum sínum góða þjónustu. Þá ber að þakka að fjárhagsáætlun var samþykkt samhljóða með sjö greiddum atkvæðum og var unnin í mikilli einingu kjörinna fulltrúa. Fjárhagsáætlun hvers árs er leiðarvísir okkar sem berum ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins hún segir til um hvað við höfum til umráða í hverjum málaflokki. Það er mikilvægt að við ástundum ábyrg vinnubrögð höfum eftirlit með framkvæmd fjárhagsáætlunar og ekki síst bregðumst við ef eitthvað óvænt kemur upp í rekstri sveitarfélagsins.

Það er ánægjulegt að segja frá því að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði er lækkaður um 6 punkta fer úr 0,5% niður í 0,44%, sem þýðir að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði stendur nokkurn veginn í stað á milli ára, þrátt fyrir 14,4% hækkun á fasteignamati íbúðareigna. Fjárhagsáætlun hvers árs er unnin af vandvirkni, allur ferill vinnunnar er skýr sem og hlutverk hvers og eins, ásamt því mikilvægasta að hún endurspeglar ábyrgan rekstur. Handbært fé frá rekstri er jákvætt um tæpar 567 milljónir á næsta ári og það er jákvætt út áætlunartímabilið um 600 milljónir króna. þrátt fyrir það myndast lánsþörf fyrir áætluðum framkvæmdum á árinu 2027 upp á 140 milljónir króna.

Á áætlunartímabilinu eru stór verkefni í pípunum og má þar nefna slökkvistöð, vatnstank við Upsa, Ráðhús endurnýjun innanhúss og bygging nýs byggðasafns við Menningarhúsið Berg. Tvö af þessum verkefnum, slökkvistöð og vatnstankur hafa verið á áætlun allt kjörtímabilið en því miður tafist af margvíslegum ástæðum.
Þá minni ég á að í í allri umræðu um fjárfestingar að sveitarfélagið er þjónustufyrirtæki og það þarf fjármagn til þess að reka þá þjónustu, okkur hættir nefnilega til að mæla árangur út frá verklegum framkvæmdum því þjónustan er ekki eins áberandi í okkar daglega lífi, en er okkur öllum nauðsynleg.

Til þess að jákvæð þróun sveitarfélagsins haldi áfram skiptir forgangsröðun í þágu skipulagsmála og uppbyggingu innviða sem og góðrar þjónustu við íbúa lykilhlutverki.
Hér má finna hlekk af framsögu minni við síðari umræðu við fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029.

Að lokum langar mig langar að þakka starfsfólki Dalvíkurbyggðar sveitarstjórn og öllu því fólki sem starfar í nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins fyrir óeigingjart starf í þágu sveitarfélagsins.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.