Fjárhagsáætlun 2010

Minnt er á að þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til fjármála- og stjórnsýslustjóra fyrir 8. október 2009.

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2010. Auglýst er eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.


Fjármála- og stjórnsýslustjórinn í Dalvíkurbyggð
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Netfang: gp@dalvik.is