Fjárhagsáætlun 2007

DALVÍKURBYGGÐ

Fjárhagsáætlun 2007

Nú fer að hefjast vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2007.  Auglýst er eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til fjármála- og stjórnsýslustjóra fyrir 9. október 2006.

Fjármála- og stjórnsýslustjórinn í Dalvíkurbyggð

Guðrún Pálína Jóhannsdóttir

Netfang:  gp@dalvik.is