Fiskidagurinn mikli flokkar rusl

Fiskidagurinn mikli flokkar rusl

Í dag, miðvikudaginn 4. júlí, undirrituðu fulltrúar fjögurra aðila samvinnusamning sem snýr að flokkun á rusli sem til fellur á Fiskideginum mikla. Undirritunin fór fram í Bergi menningarhúsi á Dalvík.

Undanfarið hafa stjórnendur Fiskidagsins mikla unnið að því að skipuleggja flokkun á rusli sem fellur til á fjölskylduhátíðinni Fiskidagurinn mikli. Í ár verður skrefið tekið lengra með samvinnu fjögurra aðila, Samáls samtaka álframleiðenda, Sæplasts, Gámaþjónustu Norðurlands og Fiskidagsins mikla. Stefnt er að því að flokka álpappír, plast og almennt sorp ásamt því að dósir og plastflöskur eru flokkaðar af Björgunarsveitinni á Dalvík og rennur ágóðinn af þeirri söfnun óskiptur til sveitarinnar.  Næstu árin stefnir hugur þessara aðila til enn meiri flokkunar og að fá fleiri aðila að borðinu.

Sæplast setur upp litakerfi og merkingar á Sæplastkör sem verða víða á hátíðarsvæðinu og standa vonir til þess að gestir kynni sér merkingar og leggi verkefninu lið. Gámaþjónusta Norðurlands sér að venju um að taka það sem flokkað er og kemur á rétta staði.

Samál, sem eru nýir í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla, leggja verkefninu lið en til gamans má geta að Fiskidagurinn mikli hefur notað um 2,6 tonn af álpappír í þessi 17 ár.

Allt frá upphafi hefur Fiskidagurinn mikli  lagt mikla áherslu á að umgengni sé góð. Oft hefur verið rætt um að þar sem allt er frítt á Fiskideginum mikla sé aðgöngumiðinn sá að gestir gangi vel um og sýni almennt góða hegðun. Við mælumst því til þess að gestir leggi verkefninu lið með því að nota eins mikið og hægt er sömu diska, súpuglös og fleira.

Á myndinni eru Pétur Blöndal frá Samál, Þorsteinn Már Aðalsteinsson frá Fiskideginum mikla,  Helgi Pálsson frá Gámaþjónustu Norðurlands og Elías Björnsson frá Sæplast.

Einnig notuðu fulltrúar Samáls, Appelsín, Sæplast og Fiskidagsins mikla tækifærið og skrifuðu undir styrktarsamning þessara aðila fyrir Fiskidaginn mikla 2018. Þessir þrír aðilar eru allir í góðum hópi aðalstyrktaraðila. Sæplast hefur verið mikill og góðu bakhjarl allt frá upphafi og ávallt í hópi aðalstyrktaraðila. Samál og Appelsín eru nýir í hópnum og eru þeir boðnir sérstaklega velkomnir. Allir drykkir á hátíðinni í ár verða í boði  Egils Appelsín.