Fiskidagurinn mikli 2013 - útimarkaður

Nú er hægt að sækja um pláss á útimarkaði á Fiskidaginn mikla. Svæðið sem um ræðir er hið sama og fyrri ár, græni bletturinn norðan við Gregors pub á gatnamótum Hafnarbrautar, Kirkjuvegs og Goðabrautar. Sala á öðrum opnum svæðum á vegum sveitarfélagsins er ekki heimiluð.

Líkt og í fyrra verður svæðið eingöngu ætlað fyrir söluvarning íbúa sveitarfélagsins. Umsóknir skulu sendar á netfangið margretv@dalvikurbyggd.is  eða í síma 861 4908 fyrir 20.júlí 2013 milli kl. 8:00-16:00 virka daga. Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að.

Um markaðssvæðið gilda Reglur um götusölu og útimarkaði sem er að finna á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is  

Að auki gilda eftirfarandi reglur:
1. Markaðurinn verður opinn frá kl. 11:00-17:30 og eru þátttakendur beðnir um að virða þessi tímamörk.
2. Allur frágangur sölusvæðis er á ábyrgð þátttakenda, þar með talið ruslatínsla.
3. Þátttakendur þurfa sjálfir að koma með borð og annað sem þarf fyrir þeirra eigin sölu.
4. Svæðinu verður ekki skipt upp í reiti heldur sjá þátttakendur sjálfir um að skipta plássinu á milli sín. Vinsamlegast takið tillit til annarra seljenda.
5. Sala matvæla er háð leyfi Heilbrigðiseftirlitsins og verða þátttakendur að vera tilbúnir að framvísa leyfum á staðnum ef þess er óskað.
6. Þátttakendur sem ekki framfylgja reglum og/eða hafa ekki tilskilin leyfi verður vísað af svæðinu.

Ef upp koma spurningar eða álitamál vinsamlegast hafið samband við Jón Arnar í síma 898 3490 eða Margréti í síma 861 4908.


Jón Arnar Sverrission, garðyrkjustjóri
Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi