Fiskidagskappreiðar 2010

Fiskidagskappreiðar 2010


Fimmtudaginn 5. ágúst kl 17:00 verða haldnar kappreiðar á Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík.
Keppt verður í 100m skeiði fljúgandi start, 250 m brokk, stökk og skeið úr startbásum. – Rafræn tímataka.

Vegleg peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverri grein, að auki fá sigurvegarar glæsilegan ferðakistil framleiddan af Prómens Dalvík.

Skráningarfrestur er til 1. ágúst kl 20:00 og fer fram í gegnum heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net.

Skráningargjald er kr 3000 á hest pr.grein. Þar af rennur 50% af skráningargjaldi í verðlaunafé sem gerir grunnpottinn enn stærri.
Skráningargjald greiðist inn á reikning félagsins fyrir kl. 20:00 þriðjudaginn 3.águst.

Mótshaldarar áskila sér rétt að fresta móti, verði þátttaka ekki næg.

Mótanefnd Hrings.