Fimmtudaginn 20.nóv verður bókin Meistarinn og áhugamaðurinn árituð í Siggabúð

Fimmtudaginn 20. nóvember milli kl 16.00 og 18.00 verða höfundar bókarinnar “Meistarinn og áhugamaðurinn” í Siggabúð, hjá Siggu og Bjössa gefa súpu og árita bókina. Að því tilefni verður bókin á einstöku tilboði. Meistarinn og áhugamaðurinn er norðlensk bók en áhugamaðurinn er Dalvíkingur, hönnuðurinn er frá Dalvík og prófarkarlesarar frá Dalvík og Svarfaðardal. Bókin í heild sinni er því alfarið unnin í Eyjafirði. Nú er tækifæri að drífa sig og kíkja á þessa smellnu bók.