Fimleikahringurinn mætir á Dalvík - Evrópumeistarar í hópfimleikum

Miðvikudaginn 1.ágúst nk. munu Evrópumeistarar í hópfimleikum vera á ferðinni á Dalvík líkt og í fyrra. Stelpurnar koma úr Gerplu og verða með sýningu og í framhaldinu verða þær með námskeið sem allir mega taka þátt í. Kostnaður við námskeiðið er 1000 kr en frír aðgangur að sýningunni. Sýningin mun hefjast kl: 16:00 og verður haldin í Íþróttamiðstöðinni.
Þetta er tækifæri sem enginn má láta fram hjá sér fara hvort sem einstaklingur kann hvorki kollhnís né handahlaup.

Fjölmennum í íþróttamiðstöðina og tökum vel á móti Evrópumeisturunum glæsilegu.