Félagsþjónustan óskar eftir fólki til starfa við liðveislu

Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar óskar eftir fólk til starfa við liðveislu fyrir börn og ungmenni. 

Hvað er liðveisla?
Liðveisla er persónulegur stuðningur við einstakling sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og stuðla að því að hver og einn getið notið félags- og menningarlífs á eigin forsendum.

• Starf liðveitanda felst í að aðstoða einstaklinga í ýmsum daglegum athöfnum, persónulegri ráðgjöf og aðstoð sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega
  einangrun.
• Liðveisla felst því í að fara með viðkomandi í bíó, leikhús, kaffihús, bókasafn, eiga notalegt spjall, bíltúr, gönguferð og fleira.
• Samkvæmt reglum Félagsmálaráðs Dalvíkurbyggðar á hver einstaklingur rétt á tólf klukkustundum í liðveislu á mánuði nema að félagsmálaráð hafi 
  samþykkt annað.

Hæfniskröfur:
• Hlýlegt viðmót, jákvæðni og umhyggja
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
• Að sýna ábyrgð og vera ábyrgðarfullur
• Að vera hugmyndaríkur og sveigjanlegur

Umsóknarfrestur er til 8.júní 2012


Frekari upplýsingar veitir Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri í síma 460-4900.


Umsókn og ferilskrá skal senda á netfangið eyrun@dalvik.is  eða skila í þjónustuver bæjarskrifstofunnar. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu.